Út er komin bókin The Bloomsbury Handbook of Microhistory: Origins, Present State and Prospects í ritjórn Sigurðar Gylfa Magnússonar, prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands. Sigurður ritar einnig grein í bókina ásamt tveimur öðrum fræðimönnum við Háskóla Íslands, þeim Gavin Lucas, prófessor í fornleifafræði, og Davíð Ólafssyni, prófessor í menningarfræði.
The Bloomsbury Handbook of Microhistory veitir fyrstu ítarlegu úttektina á fræðasviði sem hefur vaxið hratt á síðustu þremur áratugum. Sigurður Gylfi segir að með áherslu sinni á hið smáa, mikilli nákvæmni í rannsóknarvinnu og hugvitsamlegri framsetningu, hafi einsagan þroskast verulega sem rannsóknaraðferð meðal sagnfræðinga. Hún sé jafnframt frábært tæki til að kenna almenn lögmál sagnfræðinnar og vinnubrögð innan fræðigreinarinnar. Hann segir að í ritinu sé hið staðbundna og hið hnattræna fléttað saman sem geri verkið að ítarlegustu og áreiðanlegustu úttekt á einsögu sem komið hafi út til þessa.
Í verkinu er að finna 26 kafla eftir 23 einsögufræðinga, þar á meðal þekkta fræðimenn á borð við Natalie Zemon Davis, Carlo Ginzburg og Giovanni Levi, auk sérfræðinga frá Bandaríkjunum, Kanada, Brasilíu, Íslandi, Noregi, Danmörku, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi, Ítalíu, Afríku og Indlandi. Meðritstjórar Sigurðar eru Deivy Ferreira Carneiro, prófessor í sagnfræði við Federal University of Uberlândia í Brasilíu, og Thomas V. Cohen, prófessor emeritus við York University í Kanada.